|
Heimsóknir
Í dag: 12 Alls: 34045
Dagsetning
10. febrúar 2012
|
10.06.2008 10:20:12 / ingaloa86
Jæja.. hef nú ekki skrifað neitt hér í langa tíð..enda eru flestar blog-síður að verða dottnar upp fyrir.. ekki lengur mjög nýmóðins að halda uppi bloggi. Ég geri hvað ég get til að tolla í tískunni og þess vegna hef ég skráð mig á fésbókina og minn geimur líka.. Svo ég held ég láti það bara nægja mér í bili.. ótrúlegt kíki sjálf aldrei hingað samt virðist eitthvað fólk actually líta við hér.. velti mjög fyrir mér hverjir það séu.. því aldrei kommentar neinn.. og vinir mínir glestir vita að ég er löngu búinn að gefast upp á þessu. Endilega kommentaðu eða kvittaðu kæri gestur, mér þætti svo vænt um það. Sé ykkur annars bara á fésbókinni og minn geimur  Kær kveðja Ingibjörg
»
25.03.2008 23:12:07 / ingaloa86
Hvar er lóan..? Ég hef allavega ekki enn þá rekið augun í hana.. og minnist þess nú ei að hafa heyrt um að hún sé komin til landsins en jii... það væri nú nice ef hún færi að koma og kveða leiðindin burt. Get ekki beðið eftir vorinu. Fátt er að frétta héðan úr Fífulindinni, er hálf döpur yfir því að páskafríið mitt sé útrunnið og kaldur veruleikinn kemur enn á ný. Hefði alveg verið til í hálfa viku í viðbót,  Í fríinu eyddi ég töluverðum tíma með fjöskyldunni, fór í keilu og út að borða og renndum líka einn dag í Bláa lónið. Ótrúlega fín aðstaðan þar en ótrúlegt hvað þarna er ætíð mikill fjöldi manns.. Það kostar allaveg nóg að mínu mati.. en þar sem ég borgaði ekki reikningin slapp það fyrir horn. Ég veit nú ekki hvort ég eigi að vera að segja frá þessu.. en hauskúpan fannst nokkrum metrum frá sveitabænum sem ég er frá í Kjósinni og ég þekki til í þessu máli. Fannst þetta mjög creepy svona í fyrstu fréttum sem komu í fjölmiðla, sennilega búinn að sjáof margar spennu og hasamyndir og lesa aðeins og mikið af Arnaldi. Því hugurinn var farinn að reika um alla heima og geima. Læt þetta duga að sinni.. vil þó sérstaklega þakk ÁSDÍSi og JÚLÍU fyrir að kommenta hjá mér - manni þykir allat pínu gaman af svoleiðs. Góða nótt
»
02.03.2008 12:30:07 / ingaloa86
Þá kemur fyrsta færsla ársin 2008. Er búinn að vera í leti stuði við þetta... maður verður að taka sér smá pásu alltaf öðru hvoru. En allavega þá tókst mér loksins að hafa mig í þetta. Ég er búinn að skammast mín svo mikið fyrir að hafa alltaf þessa blessuðu jólasögu.. þið bara trúið því ekki. En allavega þá hefur nú fátt lítið vera að gerast í mínu lífi. Allavega ekki það stórfenglegt að ég muni eftir því.
Fyrir ykkur sem ég hitti aldrei þá er ég sem sagt komin aftur til Íslands og bý í forelrdrahúsum. Er bara farinn að vinna aftur á leikskólanum. Ég afrekaði þó að byrja á fullu í ræktinni og er búinn að minnka niður um 1 nr. núna... Fer lágmark 3 til 6 sinnum í ræktina í hverri viku. Þetta er bara æðislegt, svo margt hefur lagast bara við það að fara að hreyfa sig, Kanski ein sein að fatta.. en allavega þá betra seint en aldrei.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, en ætla að taka mig á og fara að kíkja hingað sjálf reglulega. Ég vona bara að þið séuð ekki alveg búinn að gefast upp á mér. Hafið það sem allra best.
Inga Lóa
»
06.12.2007 21:35:13 / ingaloa86
Jólahvað....? Já.. Einungis 14 dagar í heimferð, get varla beðið að komast heim og komast í alvöru jólafíling. Þó svo ég sé nú komin með smá jólafiðring þá vantar alveg að sjá jólaljósin sem prýða dimm vetrakvöldin og jólakökurnar, matinn... allt saman. En síðustu helgi vorum við að elda fyrir 70 manns og það gekk líka svona ljómandi vel og kennarinn okkar var svo stoltur af okkur að hann lét kalla okkur fram á svið og það var nú bara staðið upp og klappað... Þetta var nú pínu einum of amerískt fyrir minn smekk. en alltaf gaman að fá klapp á bakið. Þetta var líka ansi strembin dagur. við mættum kl. 10 um morguninn og vorum að fram að miðnætti. Þar sem veislan var haldin í öðru húsi en þar sem eldhúsið var þurftum við líka að bera allt á milli. Það var alveg pínu strembið og rigning í þokkabót. En það var samt lúmskt gaman að þessu öllu saman. Fengum 800 DKK fyrir daginn og það er ekki leiðinlegur glaðningur þegar maður er sárafátækur fyriri jólin. Vikan er búinn að vera algjört brjálæði, búinn að vera á fullu að ´klára allt sem þarf að klára. Svo í næstu viku er þemavika, þar sem við gerum myndbönd og stuttmyndir sem verða notuð til kynningar á opnu húsið þann 16. Des. Þið eruð öll velkomin elskurnar mínar... Við erum þessa dagana í svokölluðum Nisse - leik. Það er svona leynivina leikur. Leynivinurinn minn var að senda mér ískaldan jólabjór.. svo nú sit ég hér með öl í annari - ekki leiðinlegt. Jeg hygger mig - eins og danirnir myndu segja Það var síðasti tíminn í list í dag.. frekar mikill bömmer. En ég er ákveðinn að skella mér í listakóla kópavogs þegar ég kem heim. Langar mjög mikið til að halda áfram að mennta mig á þessari braut. Allavega hafa þetta sem hobbý til að byrja með hver veit nema einn dag að það geti orðið atvinna. En svo ætla ég bara aftur á elsku besta Dal þegar ég kem heim. Það er nú eiginlega ekki neitt meira að frétta af mér í bili, ég kveð því að sinni og bið að heilsa öllum vinum og vandamönnum nær og fjær. Kossar og knúsar, Idía í baunalandi p.s. eitt sem mér finnst alveg stórkostelga fyndið.. þeir kalla jólasveininn Julemanden og ímyndaðu þér ef þú beinþýðir þetta yfir á íslensku... Jólamaðurinn... hljómar hrikalega illa!
»
30.11.2007 16:00:56 / ingaloa86
Sælir landar mínir. Það er bara strax komin ný helgi, eins og mér finnst stutt síðan síðasta helgi var. Síðasta helgi var tekin með glans hérna úti..... það var svo kölluð vinahelgi eins og ég sagði frá í síðustu færslu.. og já viti menn þessi helgi var svei mér þá VINALEG í alla staði. Já, allir voru vinir okkar og ef ekki meira en vinir... en what happens in Brandbjerg stays in Brandbjerg svo restina kæri lesandi verður þú bara að ímynda þér.. hehehe.. og daginn eftir var háfl skondið hvað kennarinn einn sagði við okkur.. "well Shit happens..." en það átti meira vi þá sem máluðu sta´fina utan á skólanum rauða... já, ýmislegt var brallað og man maður eftir laugardeginum í litlum brotum... en eitt er víst að þetta var besta helgi sem hér hefur verið haldinn.. Einn vinurinn talaði svo fallega um Íslands að þjóðarrembingurinn í manni var að springa.. en þegar maður er svona langt fjarri heimahögum. Þá megi þið vel vita það að ég allavega... sé betur og betur hversu mikill ÍSLENDINGUR ég er í húð og hár. En já, þessi vinur fannst allt frábært um Ísland, hvað sem það var, landið, tungumálið, fólkið... bara allt saman. Og Danir sem ELSKA ÍSLAND eru ekki á hverju strái skal ég segja ykkur... " Isss bara einhver eskimóar" En á morgun er 1. des og í tilefni þess setti starfsfólk skólans upp jólaskraut á borðin í dag... og viti menn þær settu jólarósir upp sem ég btw. er með OFNÆMI fyriri og ég er ekki að tala um bara 1 stk.. ónei nei.. meira svona 50 stk. jámm.. Það verður gaman hjá mér næstu daga Þessa helgi erum við í Cooking - team- inu að fara að elda fyrir Koppar Brullup. En það er sem sagt starfsmaður og konan hans að halda upp á 12 og hálfs árs og brúðkaupsafmæli sitt. Svo öll helgin fer í að elda fyrir þessa 70 manna veislu. Hafið það gott þarna á Fróni, hlakka til að sjá ykkar eftir 20 daga. Endilega kvittið fyrir komuna.. Love jú all... Idías í jólaskapi 
»
24.11.2007 11:12:07 / ingaloa86
Sælir landar vorir nær og fjær, til fjöru og fjalla, kvenna og kalla. Dag hvern fer dögunum í heimkomu vora frá Danaveldi fækkandi, nú þessa stundina munu vera 26 dagar í að vér stígum á land á Fróni. Ykkur er það kunnugt, er þér hafið rétt lokið við að skrifa heila færslu og vandað hvert orð og svo tekur tölvand stundarbrjálæði, og eins og hendi sé veifað er öll færslan þín. Hvert einasta orð horfið og ekki á leið tilbaka. Það er gjarnar að maður fyllist yfirþyrmandi illsku og vonleysi er góður vinur, eins og tölvur eru gjarna bregðast manni á svo svikulan hátt. Af vini að vera er varla hægt að finna verri veg til að bregðast manni. Þessa helgi er vinahelgi og hafa því Danirnir boðið vinum og vandamönnum hinga til veislu og hátíðarhalda. Vér höfðum nú möguleika á að bjóða einum vin, en sá hann sér ekki fært um að mæta og tók þótti það okkur sárt. En slíkt lætur maður ei á sig fá, heldur stendur upp og berst fyrir hamingju sinni, því höfum vér sent flöskuskeyti sem von bráðar lendir í fjörum vorar kæru fósturjörð. Síðast liðnga viku höfum vér haft er Danirnir nefnaa Brandfagsuge og þá vikuna er hver nemandi bara í tímum í aðalfaginu sínu. þar sem það er list hjá mér, eyddi ég tíma mínum í list þessa vikuna og vildi ég óska þess að allar vikur væru listavikur. Þetta var mikil skemmtun og vorum við að búa til gipsstyttur, en vér bjuggum einnig til formin fyrir gipsið. Í dag, er sól rennur í haf mun vera haldið hér teknó teiti og búið er að redda ýmsum varningi, t.d. fyrir plötusnúðin, ljós og reyk og hitt og þetta. en kæri vinu endilega skildu eftir komment,
»
14.11.2007 17:52:53 / ingaloa86
BLOGG 3
ÁRA
Í dag er bloggið
mitt 3 ára gamalt.
Hér er færslan sem
birtist þann 14-11-2004.
Sæl öll og velkomin á nýja bloggið
mitt. Ég var að koma heim úr smáralind, keypti mér nýja skó
eða réttara sagt
mom&dad gáfu mér ný stígvél. Ég hef ekki efni á neinu,
marr.. er að spara fyrir London. Já í dag eru 31 dagur þangað
til og 40 dagar í jólin, ég er farin að hlakka svo til. Helgin
er búinn að vera fín, byrjaði strax á föstudaginn með því að
skella mér í Elliðárdalin og gekk þar 10km sem var bara mjög
fínt. Svo fór ég bara heim, horfði á Shrek 2 og hafði það
rólegt. Svo skelltum við okkur í gær=laugardaginn í keilu. Það
var fínt, Rut sigraði. Til Hamingju Rut já og líka
Tinnna til hamingju svo eftir það
skellti ég mér á rúntinn með Heiðrúnu og Bjarneyju það var
bara mjög gaman hjá okkur. Alltaf gaman að kíkja á okkar
myndarlegu íslensku karlmenn sem eru að slæpast um á
laugarveginum og það voru nokkrir 100% súkkulaði við hlógum og
skemmtum okkur mikið. Svo þegar við vorum búnar að yfir gefa
Bjarneyju þá fórum við Heiðrún og ætluðum bara að taka einn
rúnt í viðbót. Við vorum bara að spjalla saman og svo verur
mér litið bara í smá stund á stelpu sem er að deyja úr kulda
og grætur og ég segi við Heirúnu " æji sjáðu , ég vorkenni
greyjinu" um leið og ég hafði sleppt þessum orðum var bankað á
gluggan og það var stelpan . hún bað okkur um að skutla sér
bara í næsta hraðbanka af því hún væri alveg frosin úr kulda
og henni finndist við svo sakleysislegar og eikkað. Ég átti
ekki til nein orð, var ekki viss hvort éeg ætti að vera hleypa
ókunnugri manneskju upp í bílinn en eikkað fékk mig til að
segja já. Ég endaði svo á því að keyra hana heim og hún
borgaði mér 3000kall fyrir það. já, ég veit ekki alveg hvað ég
var að pæla að hleypa ókunnugri manneskju upp í bílinn en sem
betur fer þá fór allt vel að lokum. Köttur út í mýri..... úti
er ævintýri.
»
05.11.2007 21:55:34 / ingaloa86
Já fínn, já sæll, já fínn, já sæll já fínn já sæll...... Fyrsta sem ég lærði þegar ég kom heim.. og hefur þessi frasi verið fastur í hausnum á mér síðan þá... Það var yndislegt að koma heim og hitta allt og alla. Þegar ég kom úr tollinum á Leifstöð biðu þar sætu systur mína og Bjarney bumbulína og kærastinn hennar. Það var ljúft að þurfa ekki að taka leigubíl heim því ferðin heim var mjög löng. Ég var 5 klst að ferðast með strætó og lest og svo þurfti ég að bíða heila 4 tíma til að komast í flug, enda búinn að grandskoða Kastrup. Á leiðinni heim var vélin nánast tóm.. einn maður í hverri röð. Ég var svo lánsöm að fá hjón fyrir framan mig sem rifust alla leiðina heim. Hótuðu að byrja öskra yfir alla og berja hvort annað... – vona að ég komist ekki aftur í svona stöðu. En aftur heim, það var yndislegt að komast heim að knúsa systur mínar. Ásdís búinn að grennast þvílíkt og Hnossi búinn að stækka. Það sem mér fannst furðulegast var að ég gat fundið lykt af heimilinu mínu þegar ég labbaði inn. Æji, þið vitið það er alltaf svo mismunandi lykt heima hjá fólki... þið hljótið að vita hvað ég er að meina. Það var allaveg fremur furðulegt. Við systurnar vorum bara 3 saman yfir hlegina því að forledrar okkar voru staddir á Írlandi þessa helgi. Það var voða kósý hjá okkur. Við heimsóttum ömmu og afa og fleiri. Svo á mánudeginum þá kíkti ég út í leikskóla, og þau mundu nú flest eftir mér.. það var mjög notalegt. Börnin mín öll orðin risastór alveg svakalega mikil breyting á þeim. Þau rir voru nú ekki einu breytingarnar.. því eftir að ég fór að heiman er komin húshjálp á heimilið og mamma og pabbi eru búinn að kaupa sér nýtt ó stofuma. Á mánudeginum komu svo forledrar mínir heim og mikið var ljúft að fá faðmlag frá forerldrum sínum. Aumingja pabbi kallinn hrasaði í ferðinni og var alveg ´buinn að vera að farast í hendinni. Þegar hann kom heim var drifið með hann til læknris og viti menn.. – kallinn bara búinn að handleggsbrjóta sig. Já ekki alveg nógu gott. Þá næst kvaddi ég ´Island á fimmtudaginn síðast liðinn. Við systurnar héldunm sanan til Konsnings köbenhavn. Það var nú meira stuðið. Farið var í öll mollin og á Strikið og versluðum eins og okkur hefði verið borgað fyrir það. Við skemmtum okkur konunglega þarna saman og hlógum og hlógum út í eitt. Þetta var nú bara með þeim betri ferðum sem ég hef farið í. Nú er ég komin aftur í skólan og samkveimt útreikningi systra minna eru aðeins 44 dagar eftir af dvöl minni hér í Danmörku og veit ég varla hvort ég eigi að hlæja eða gráta. Ég læt þetta duga í bili, hafið það sem allra best, hittumst heil. Kveðja Inga Lóa.
»
22.10.2007 17:24:04 / ingaloa86
Hæ hæ Ég er að fara að koma í heimsókn heim til Íslands...     Ég kem á föstudaginn og verð sennilega fram á fimmtudag. Jibbý...
»
11.10.2007 16:01:49 / ingaloa86
Sæl og blessuð, Ég er búinn að hafa endalasut mikið að gera síðan ég kom "heim" frá Tékklandi... maður var alveg svakalega þreyttur eftir þessa ferð, gjörsamelga búinn á því og sem betur fer fengum við dag til að bara slaka á sofa og jafna okkur. Því við vorum svo mikið á ferðinni og alltaf endalaus dagskrá svo það var frábært að fá að slaka á einn dag. Svo byrjaði vikan að ganga sinn vana gang aftur og allt fór í fyrra horf. Hekla Sóley átti svo afmæli 2 . okt og varð 3 ára og af því tilefni skellti ég mér til Svíþjóðar þá helgina þar á eftir ég fór á föstudegi stax eftir skóla. Tók lestina frá Velje til Fredrekshavn og tók svo ferju þaðan yfir til Gautaborgar. Ég var nú reyndar bara heppin að fá að fara með ferjunni yfir.. ég reiknaði ekkert með því að þeir loka 20 min fyrir brottför og ég kom þangað 8 mínútum áður en ´ferjan átti að sigla úr höfn. Ég: " God aften!" Hann: " God aften, kan jeg hjælpe dig?" Ég: " Yes, I would like to buy 1 tikcet with the ferrí to Göteborg leaving now at 20-00!" Hann: " I´m sorry your to late, we have closet." Ég fékk gjörsamlega hjartastopp, langaði mest að fara að grenja, því ég var auðvitað með tösku með mér og þurfti að finna leiðina frá lesta stöðinni að höfninni og það var alveg dágóður spotti að ganga, og ég kom þarna móð og másandi og týpískt að ég nái ekki ferjunni. Veit ekki hvað ég hefði gert, því Lára og Sindri ætluðu að sækja mig við höfnina og þau myndu mæta og engin Ingibjörg kemur út úr bátnum og hvar hefði ég gist, þvi engin ferja var að far fyrr en daginn eftir. Ég grátbað manninn, og sagði að það væri mjög áríðandi að ég kæmist til Gautaborgar þetta kvöld. Hann var nú ekkert alveg á því strax en að lokum sagði hann ok, en það tekur tíma að búa til miðan og við skulum sjá til hvort við náum þessu. Sem betur fer náði ég þessu og það kom einhver gaur og fyldi mér sér leið í bátinn til að flýta fyrir. En já ég gleymdi að segja ykkur að þegar ég kem þarna að miðasölunni sé ég að þar stendur maður og er á leiðinni með ferjunni, hann fylgdist með því hvort ég kæmist í bátinn eða ekki og hann var sem sagt frá Tyrklandi eða eitthvað þessum líkt og heyrðu þegar ég kem inn í bátnn þá bíður hann í andyrinu og fer eitthvað að spjalla við mig.. og ég var nottla bara kurteis og svaraði honum og jæja, svo bara segir hann.. jæja eigum við ekki að finna okkur sæti... eigum VIÐ.. ég bara " hehehe... jú einmitt. Vissi ekkert hvað ég átti að segja gat eiginlega ekki bar sagt " Nei " og ég gekk á undan honum og var að hugsa, fokk hvernig losna ég við þeana dúdda..jæja svo fann ég lengsta bekkin sem til var í allri ferjunni.. skellti töskunni minni í miðjuna og settist í annan endan, þannig að hann neyddist til að setjast í hinn endan. Svo blaðraði hann og blaðraði , og reyndi að halda uppi samræðum. Ég passaði mig á að svara hverri spurningu með suttu og hnitmiðuðu svari og spurði aldrei á móti. Langaði ekki að gefa honum til kynna að mig langaði eitthvað að vera að tala við hann. En hann spurði eiginelga bara sjálfan sig, og svaraði, heyðru svo sagði hann að hann heðfi hitt íslenska stelpu í Álaborg ig hún hefði sagt honum að Íslendignar væru mikið fyrir það að kynnast fólki frá örðum löndum og vildu tala mikið, ég svaraði honum þá þannig að það færi bar eftir hverjum og einum, Íslendingar væru ekki allir eins, sumir fíla það og sumir fíla það alls ekki. Svo tók ég upp bók og þóttist vera að lesa, gat í raun ekkert lesið því ég var svo mikið að spá í hvernig ég gæti komið mér út úr þessum óþægilegu aðstæðum. Langaði ekki baun í bala að sitja hjá þessum fimmtuga, gamla útlending. Jæja, sem betur fer er búð í ferjunni, svo ég pakkaði bar saman dótinu mínu og fór og keypti gjafir og afmælispakka handa allri sænsku familíunni. Ég reyndi að eyða sem mestum tíma þar til að þurfa ekki að fara aftur upp. Sem betur fer var nóg að skoða, og svo var líka aðstaða til að pakka inn gjöfunum. Svo ég dúllaði mér við það að pakka öllu saman vel og vandlega inn. Svo loksins kom ég til Svíþjóðar, það var svo notalegt að koma til þeirra. Mér leið eins og ég væri bara einn af familíunni og það var mjög góð tilfinning. Að geta talað saman öll á íslensku og æji, ég get varla útskýrt þetta en þetta var bar asvo notalegt. Það var líka svo gaman að hitta krakkana. Þar sem ég var ein á ferð var ég líka svo heppin að fá alla athyglina. Hekla, Eygló og Aron eru svo sæt. Aron á fullu að æfa fót- og handbolta, og Eygló í fimleikum og dans og sú yngsta svo skemmtilega ákveðinn. Það er líka svo krúttlegt hvernig hún blandar saman íslensku og sænsku. Ég gat líka fengið gott tækifæri að kynnast krökkunum aðeins. Sem betur fer er maður allu vanur eftir leikskólan og að leika við skvísurnar var lítið mál. Ég fékk líka tækifæri til að spjalla við Láru og Sindra og það var nú ekki verra. Svo á laugardeginum, var haldið upp á afmæli litlu skvísunar og þeir Íslendingar sem þau þekkja komu í heimsókn. Þetta var mjög gaman. Maður fékk líka aðeins innsýn í þeirra líf, hvernig það er að vera í örðu langi og ekki vera að fá fjölskylduna í heimsókn... Svo á sunnudeginum, fórum við í bíltúr og í ísbúðina. Svo he´ldum við kerlunar saman í mollið og mér tókst að finna nokkra nytja góða hluti þar. Svo fékk ég bara íslenskan lakkrís og nóa siríus súkkulaði, nammi namm og ekki nóg með það að ég fékk líka pítu takk fyrir með íslensri pítusósu. Það var mjög góð tilbreyting frá matnum hérna í skólanum. SVo kom mánudagur og á hélt heim. Ferðalagið tók heilar 9 klst takk fyrir, var orðin ansi þreytt þegar ég kom hingað rétt fyrir kvöldmat. En það var svo skrítið að það var allt í lag að kveðja en þegar ég var svo sest ein í ferjuna, þá fékk ég þungan kökk í hálsin, langaði bara að snúa við. Það var svo gott að vera þarna, finnast maður loksins líða eins og heim hjá sér í kringum fólk sem manni þykir vænt um. Ég ætla svo að reyna að setja inn myndirnar frá Svíþjóð núna um helgina, netið er bara búið að vera svo seinvirkt að ég hef ekki nennt að standa í því. Við erum búinn að vera að fá hljómsveitir í heimsókn til okkar, mjög gaman. Fyrst fengum við popp/rokk hljómsveit. Þau voru mjög góð, svakalega gaman að sjá tónlistargaurana vera að fíla sig alveg í botn. Verða stundum svo fyndnir í framan.. hehe. En jámm, sú hljómsveit gisti bara hér og hékk með okkur krökkunum, bara voða heimilsegt. Það var mjög skemmtilegt. Svo næst fengum við úkraníska harmonikku hljómsveit, ég veit að það hljómar ekki vel en þau voru ótrúelga góð. Spiluðu þekkt úkranísk þjóðlög og þetta var svakalega flott og svo í fyrra kvöld fengum við blúsband að spila og ekki var það neitt verra en hin tvö. Já,í Branbjerg er alltaf nóg að gera skal ég segja ykkur, finnst ég aldrei hafa neinn tíma til að gear neitt. Og jámm svo vorum við Júlía að skipta um herbergi, hálf skrítið en ég varð að skipta því í hinu herberginu var teppi á gólfinu og ég er með svo mikið ofnæmi að við fórum yfir í herbergi sem er með dúk á gólfinu. Það var hálf furðulegt að flytja því hitt herbergið var líka hálfpartinn orðið okkar herbergi.. en þetta herbergi verður alltaf meira og meira okkar. Í listinni er fullt að gera, erum að búa til listaverk, með því að skera í dúka og jámm.. get ekki útskýrt þetta nógu vel.. en ég ætla einmitt að reyna að taka myndir af verkunum sem við höfum verið að gera og setja inn á netið, um leið og það er aftur komið í fyrra horf og ekki svona seinvirkt. Svo héldum við´mánudagspartý núna ´s.l. mánudag. Það er orðin fastur liður hér að á mánudögum finnum við eitthvað til að fanga og svo bíður einhver öllum í sitt herbergi og bíður upp á bjór. Og síðasta mánudag var því fagnað að ég kom til baka frá Sverge. Það var nú líka hálf skrítið að eyða heilum 3 dögum án Júlíu, hehehe erum búnar að vera saman upp á hvern einasta dag í heilar 6 vikur núna.. og ekkert rifsit, ekki einu sinni skotið á hvor aðra í geðvonsku.. svo ég held að það sé nú ekki hægt að biðja um það betra held ég. Við erum búnar að kaupa miðan heim, jibbý og heyrðu dagin eftir að við keyptum farið okkar heim, koma kennararnir og segja að það hafi verið smá mistök, því skólin klárist degi fyrr en sagt hafi verið. Svo við eigum far heim kvöldið þann 20. des en hefðu mgeta farið þann 19. des og mér finnst hver dagur fyrir jól skipta svo miklu máli. Bara til að komast í jólaskapið og svo á nú sæti hnossi minn afmæli þann 20 desember. Ég á líka örugglega eftir að kaupa jólafötin og jólagjafir og allt það sem þarf að gera fyrir jólin. Við eigum nefnilega ekki eftir að eiga mikin tíma til að gera neitt í desember því þá eru allir dagar skipulagðir hérna í skólanum. Höfum sagt hugsað okkur að nýta síðustu fríhelgina okkar til að skella okkur til Köben. Kíkja á jólaljósin á Strikinu og í Tívolíinu, og kanski kaupa okkur smá jólaskraut og seríur til að setja upp hérna hjá okkur og kíkja á Tinnu auðvitað. En elsku Ásdís mín ég vona að þetta dugi í bili, er alveg uppþornuð og get ekki skrifað meir, enda er líka barin opin uppi núna, svo eins gott að drída sig í sturtu og fara að hitta liðið. Hafið það gott, sakna ykkar, love ya Ykkar Inga Lóa Idías
»
26.09.2007 20:22:42 / ingaloa86
Hæ hæ.. Jæja.. þá er ég stödd aftur í brandbjerg hojskole, búinn að ver á ferðinni frá því fimmtudaginn 20. sept. Við lögðum af stað frá skólanumm um kl. 20-00 um kvöldið og keyrðu niður í gegnum um Þýskaland og enduðum í Tjékklandi. Á leiðinni stoppuðum við í gömlum þrælabúðum nazizta... og já, auðvitað var þarna mikilvæg saga á ferðinni, en ekki mjög upp örvandi... en það var skrítið að vera þarna, maður hafði blendanar tilfinningar, varst spenntur að vita meira, en líka óþægilegt að vera inn í klefa þar sem eitt sinn dó fullt af fólki... það var sorglegt og hálf ógeðslegt í senn.. en við Byrjuðum á að fara á hótel Hammstein í sveitaþorpi. Þetta var mjög krúttlegt, gamaldagshús og hólar og hæðir þakktar skóg. Já.. og við komum á hótelið kl. 16-00 daginn eftir þannig að við erum að tala um 20 klst. í rútu... ójá. þetta var mjög löng ferð.. og ekki nóg með það að hótelið var efst upp á hæðinni og fjallavegurinn þarna upp var þrögnur og kræklóttur og bílstjórinn var ekki alveg að höndla að keyra þarna upp... sífellt að drepa á bílnum og ekki nóg með það að í einni beygjunni klessti hann á stein.. jamm.. svo að allar næstu ferðir sem þurfti að fara urðum við hreinlega að ganga upp og niður... Fyrsta daginn sem við vorum þar fórum við í ratleik um skóg, okkur var skipt í lið og áttum að vera eins fljót og við gátum... hehe ég og strákurinn sem ég var með sem er kallaður Emil Emil byrjuðum á því að villast og fara fram hjá fyrstu stöðunni og þetta var upp á fjalla og ég ekki beint í besta formi ever... hehe svo við tókum því bara rólega og röltum um og það gekk bara mjög vel... þegar við vorum að verða komin að stöð 6 af 9 heyðrum við krakka kalla á okkur og það var hópurinn sem lagði fyrst af stað og þau höfðu villst um í skóginum og voru dauðfeginn að finna okkur.... en við rötuðum svo eftir kortinu aftur upp á hótelið... Maturinn á hótelin var hrikalegur.. sorry.. en þetta er alveg ótrúlegt svo ég er fegin að vera komin í borgina til að geta vailið mér sjálf hvað ég fæ mér og á hvaða veitingsa stað... því á hótleinu var pantað það sama fyrir allan hópinn og þau pössuðu sig nú á því að vera ekki að eyða um of í okkur.. En dag 2 þá fóru við á kanóa... það var ótrúlega gaman. Veðrið var líka alveg yndilsegt og öll þessi tré sem þökktu hæðirnar voru byrjuð að fá á sig haustliti.. Þetta var ótrúelga gaman.. við fórum alveg 10 km með ánni og það tók hátt í 2 tíma.. Ég og hann Joachim vorum saman á bát, hann er ótrúlega fínn kunni líka á þetta því hann hafði prófað þetta áður.. hann var líka svo sniðugar að taka með sér öl, nammi og súkkulaði og var í því að stopaa og bjóða öllum upp á nammi og bjór.. hehe.. bara gaman.. svo vorum við líka í því að gera árasir á aðra og sulla pínulítið á hini.,... Öll kvöld voru partý kvöld.. og það var nottla líka ótrúelga gaman.. er búinn að læra fullt af nýjum spilum og leikjum, eitt er þó alveg ótrúelgt með dani.. þeim finnst gaman að syngja við öll tækifæri.. og júú,júú það er alveg gaman að syngja en bara upp að vissu marki. Því þau eru líka bara að syngja á dösnku, þjóðlög, barnalög disneylög, ástarlög, poplög og jólalög og sálma og kirkjulög bara nefndu það og úr sönleikjum og það fynda er að það er ekki bara einn sem kann allan tectan heldur kunna þau flest öll alla texta.. þetta er ótrúelgt.. og stundum fær maður alveg nóg þegar þau eru búinn að vera syngja tímunum saman,. guð sé lof að við erum mörg hér sem tölum ensku því þá getum við allavega chillað saman og skemmt hvort öðru... Dag 3 þá vorum við keyrðu með ´rutu upp að kastal og máttum ganga þar umm til að skoða náturuna... ég og júlía lögðum af stað og vorum á undan liðinu.. það var mjög fallaget þarna og náttúra sem var engan vegin lík Íslandi.. set inn myndir fljótlega.. en við erum þarna á gangi og fykljgum kortinu alla leiðinni og ekkert mál... dönsku krakkarnir eru rétt á eftir okkur... og við höldum bar áfram að ganga.. og allt í einu eru engir danskir krakkar sjáanlegir svo við bara.. já allt í lagi.. þau koma.. en svo sáum vi þau aldrei.. svo allt í einu vorum við komnar út af þeim vegi sem við vorum að elta og við vorum vissar að fjóltega kæmi vegvísir eins og var búinn að vera alla leiðina.. en nei viti menn það kom ekki einn fokkin vegvísis.. allan leiðina til baka og við erum að tala í hátt´i 10 km göngu og hér í Tjékklandi eru þau ekkert mjög sleip í enskunni.. svo við vorum bara tvær einar og orðnar týndar í skóginum... en sem betur fer héldum við ró okkar en gengum bara ansi hratt.. og það endaði með því að veika hnéð mitt gaf sig og ég hrundi niður brekkunni og var í þokkabót að drepast í hnénu... hehe... ekta ég Sem vetur fer rötuðum við alla leið til baka og upp að kastalanum og þegar við áttum bara nokkra metra eftir þá loksins komu dönsku krakkarnir.. þá höfðu þeu verið á eftir okkur allan ´timan.. og ég ofjúía alveg orðanar kósveitar af stressi og áhyggjum... hehhe Dag 4 þá hékk ég heim með stokkbólgið hné og lá upp í rúmi... sem betur fer tók ég tölvuna og the o.c. með mér, sem stytti mér heldur betur timan þarna.. á meðan jú´lía og hinir fóru að skoða saltnámur og í klettaklifur.. Dagur 5 keyrðum til Prag í dag.. fórum gangandi með guide með okkur um borgina og hún sýndi okkur allt það merkilegasta og svo fórum við á hostelið og svo út að borða og nú sit ég hér í herberginu okkar að skrifa þetta e-mail... En jamm.. ég læt þetta nægja í bili.. kem með nánari deteila og slúður þegar ég kem til baka.. Hafið það gott.. munið að kommenta elskurnar mínar.. sakna ykkar, guð veri með ykkur Lov. Inga Lóa
»
17.09.2007 19:24:29 / ingaloa86
Hellú.. Já.. nú kem ég með sögu sem þið trúið aldrei.. Það var nú þannig Núna um síðustu helgi áttum við frí, flestir krakkarnir fóru heim til sín nema þeir sem eru erlendis frá eins og ég. Okkur langaði mjög að fara og taka lestina til Kaupmannahafnar en það kostar pening og svo líka var ekki pláss hjá vinkonu okkar Tinnu til að gista því hún var með aðra gesti. Við ákváðum þá til að gera okkur daga mun að skreppa í bæinn og finna okkur spólu, kaupa pínu nammi og kók og fara kanski út að borða. Við fórum því og stóðum í strætóskýlinu. Þegar við stöndum þar þá keyrir einn af þessum ríku viðskptamönnum upp að og bíður mér, Júlíu og samnemanda okkar honum Colin far til Vejle. Við þáðum það og settumst upp í bílinn. Hann var líka alls ekki ljótur og leit út fyrir að vera mjög venjulegur. Jæja, þegar við sitjum þarna þá segir hann okkur að hann sé á leiðinni til Kaupmannahafnar og þá datt mér í hug að við Júlía ættum kanski bara að skella okkur með honum og fá ókeypis far alla leið.. og við gerðum það. Höfðum bara fötin sem við vorum í og veskið með okkur og ekkert annað og héldum til Kaupmannahafnar með þessum unga manni. Það var líka bara mjög gaman, gátum hitt vinkonur okkar sem búa þar og kíkt á menninguna í þessari líka miklu stórborg. Það var mjög gaman að vera þarna enda er þetta líka mjög falleg borg. Mamma hringdi samt í mig þegar ég var í bílnum á leiðinni og ég held að hún hafi orðið hálf hrædd að heyra að ég væri í bíl með ókunnugum og skil ég hana mjög vel en hann leit nú ekkert út fyrir að vera einhver brjálæðingur, ekki það að stundum sést það nú heldur ekkert utan á fólki. En við komumst allaveg heilar til Kaupmannahafnar. Hann bauð okkur samt líka að fá að gista í annari íbúðinni sinni, því hann átti 2 eins og við öll gerum.. hehehe en okkur fannst þetta nú nógu kjánalegt fyrir og þorðum eiginelga ekki að segja já við því.. þó það hefði reyndar verið fínt að spara peningin sem fór í að borga hótel sem þó var alls ekki mjög dýrt. En hann hét sem sagt Kim, og er 30 ára single.. hehe og vinnur við eitthvað sem heitir Implement.. En jámm. ég trúi varla upp á sjálfa mig að ég hafi sest inn í bíl með blá ókunnugum manni iog keyrt þvert yfir Danmörku.. hehe vön að vera on the safe side í öllu sem ég geri og tek mér fyrir hendur. En við fundum ódýrt hótel og gistum þar. Svo gengum við um alla borg fram og tilbaka, upp og niður strikið og á öll torg og stræti og komnar með stórar blöðrur undir fæturnar. En þetta var mikið ævintýri og alveg stórskemmtilegt. Hver veit nema maður endurtaki það aftur fljótlega.. hehe en ég set myndir af ferðinni inn á myspace..
Love you, miss ya... Mvh. Ingibjörg Ólafía
»
12.09.2007 18:04:27 / ingaloa86
Ég þakka kærlega fyrir góðar undirtektir hjá mér.. mjög svo gaman að segja ykkur frá því hvað ég er að bralla hér úti... bara hey people.. kommenta takk, annars nennir maður ekki að standa í þessu.. plís... þó það sé ekki nema segja hæ.. því maður saknar pínu Íslands og það gleður mann að sjá pínu komment.. En ok.. jæja.. það er ýmislegt búið að ske síðan síðast.. og hér er líka djammað á mánudögum.. jámm, kærustupar sem er hér átti 3 ára sambandsafmæli svo við hittumst ölll í herberginu þeirra og heldum smá partý.. það var bara mjög gaman og það á að endurtaka það svo aftur núna næsta mánud. Við fórum til Vejle í gær, Júlía keyrði Brandbussen og það var eins og hún hefði aldrei gert neitt annað en að vera rútubílstjóri í Danmörk. Rútan var full af stelpum og við skunduðum allar í H&M og auðvitað fór engin tómhentur þaðan út.. En jámm.. ég ætla leyfa Júlíu að komast á netið núna.. en annarst þá var ég að setja inn fleiri myndir á myspace.. svo tjékk it´out.. please..
Love you, miss you, Inga Lóa
»
08.09.2007 10:48:17 / ingaloa86
Jæja þá.. það er búið að vera brjálað hjá okkur að gera.. Dagskrá allan daginn, alveg none stop frá morgni til kvölds og sem betur fer tekur við venjuleg vika núna á mánud. Ég var svo óheppin að smitast af einhverri kvefpest og er búinn að vera með hita og kvef núna í tvo daga, og er frekar fúl að ég skuli vera lasin núna í augnablikinu því í dag áttu allir að vera í svona survivor leik, hver bogruppe var eitt lið og þau verða í hátt í 24 tíma þarna úti.. á meðan er ég eiginelga ein hér í húsinu.. Frekar fúlt.. en ég get þó sagt að ég er fegin að ég fékk pestina núna en ekki þegar við erum að fara í ferðalegið til Prag. En jámm.. dauðlangar samt að vera með þeim þarna úti.. En já í gær fóru bogruppurnar í krikket og fólk átti að vera í sínu allra fínasta pússi og var dæmt fyrir fatnað, kurteisi og hátterni í leiknum.. likt og hinir prúðu bretar, boðið var líka upp á kampavín og kex.. nánast að hætti breta. Ég er staðráðin í að fara hrissta þessa flensku af mér svo ég geti farið að taka þátt í öllu því sem er að gerast hér. Því þó svo að það sé eiginlega ekkert frí þá verður bara að viðurkennast að þó maður nenni ekki af stað í alla þesssi leiki og allt þetta er svo gaman eftir á og maður kynnist líka krökkunum meira. Á fimmtudaginn var fyrsti dagurinn þegar leyfilegt var að neyta áfengis, og barin var opin. Það voru svínarif í matin, mjög góður matur. Lagt voða fínt á borð og salurinn skreyttur, allir kennararnir komu og jafn vel makar þeirra og börn. Svo var auðvitað dregiið hver átti að sita hvar. Þetta kvöld var mjög skemmtilegt, vínið hafði bara jákvæð áhrif á fólk og fólk fór að tala meira saman og fleira... Kennararnir voru líka að djamma með okkur.. eða þar að segja bara kallarnir, konurnar fóru flestar heim. Þetta kvöld var bara mjög skemmtileg... það er þó ekki margt í boði reyndar á þessum bar bara margar tegundir af bjór og víni.. og mér þykir hvorugt neitt spes.. en þetta verður örugglega til þess að ég læri að meta bjór og vín. Kennararnir hér eru mjög skemmtilegir, þeir eru samt mjög sérstakir en samt á góðan hátt. Við höfum Kahri sem er kvenkyns og er listakennarinn okkar. Hún er mjög hlý,og þægileg manneskja að vera í kringum. Hún býr hérna á svæðinu, er í kringum 40 held ég, og býr ein með hundinn sinn.. sem er algjört krútt og er alltaf að biðja alla um að kasta boltanum sínum. Hin kvennkyns kennarinn okkar er Mette, hún er ung er rétt um 30, og örugglega undir 30. Hún kennir okkur Moved by movies og film produktion, í fyrri tímanum erum við að horfa á allskyns brot úr bíómyndum og hún sýnir okkur hvernig mörg smá atriði eins og klipping, litir, hvernig þetta er tekið og tónlist og margt fleiria hefur áhrif á hvernig maður skynjar myndina... mjög skemmtilegru tími, og svo er hitt bara að búa til kvikmyndir. Metta býr líka hérna með kærastanum sínum Kasper og dóttur þeirra Hanne. Mette er líka mjög fín, við tölum alltaf við hana ef við vitum ekki hvað er um að vera eða höfum einhverjar spurningar. Hún talar voða góða ensku og er líka mjög skemmtileg. Svo eru það allir kallarnir.. ég skal segja ykkur að hér er dálítið saman safn af karl rembum.. eða þannig virka þeir allavega á mann. Við höfum aðstoðar skólastjóran Simon, hann er að kenna okkur að heimilsfræði. Hann býr hérna á svæðinu líka, með konunni sinni og 3 strákum og á líka hund. Hann er voða töffari, pínu góður með sig, syngur samt vel og fyrst virkaði hann voða pirrandi gaur.. en svo reynist hann bara vera besta skinn eins og örugglega flestir ef maður gefur fólki tækifæri. Hann er íþróttatýpa, og er 1 af þeim sem fór að veiða sem pabba sínum sem strákur og hefur ekki getað hætt síðan... Jebb sagði okkur líka þessa góðu sögu um þetta allt... hihii.. en hann er líka mjög fyndin og það var bara mjög gaman að vera hjá honum í heimilsfræði sem á dönsku heitir Mad med mode.. Svo höfum við umsjónakennarann minn hann Rassmus... Hann er 30 ára, lítill kall sem heldur sig vera mjög stóran, hann er´bara eins og fyndinn, hress og skemmtilegur og þau eru öll voða ligeglad hér.. Hann á líka heima hér með konunni sinni og dóttur. Svo er það Kasper sem er kærastinn hennar Metta.. hann er líka þessi íþrótta týpa, kennir líka íþróttir hér, og má segja það sama um hann, fyndin, hress og skemmtilegur. Síðastur er svo hann Kim hann er elstur af þeim og er ja.. örugglega að nálgast 50 held ég. Hann hefur ferðast til 70 og eitthvað landa, og komið jafn vel oftar en 2 til sumra. Hann er ótrúlega sérstök týpa, en líka ´ótrúlega skemmtilegur. Maður veit ekkert við hverju má búast af honum. En já.. talandi um þessa karlrembu um daginn þurftum við a´ð fara í hóp íþrótta tíma og þá komu allir karlkennararnir og húsvörðurinn og kokkurinn og sjá hvað testasterónið jókst, alveg fyndið hvað íþróttir og karlmenn eru skondið samstæða.. en þeir nutu þess að vinna okkur hin í leikjum sem þeir voru búnir að soila oft og við aldrei - ekki einu sinni dönsku krakkarnir.. og þeim fannst nú enn meira gaman að skipta í strákr á móti stelpum og sjá okkur tapa og koma svo og vera með okkur í liði til að bjarga öllu... hihi hehe en jámm þeir voru með svo mikin ákafa að þeir voru jaf vel farnir að slasa nemendur hehee.. en jámm það er samt frábært að þeir séu með okkur í öllu þessu gerir hlutina bara miklu skemmtilegri.. alllavega finnst mér það.. hihi en ´váááá.. hvað þetta er orðið langt en þá vitið þið allavega allt sem ég veit um þetta fólk eða svona ´nánast.. Þið getið allvega ekki kvartað ef að ég er að nefna einhvern kennara á nafn og þið þykist ekki vita neitt um hvern ég er að tala.. En allavega.. þá segi ég ekki meir í bili... Hafið það gott um helgina elsku Íslendingarir okkar sem við söknum mikið... sérstakelga þegar maður er að fara að sofa. Skrítið manni finnst alltaf eins og að heima eigi bara allt að vera stopp ef að maður er ekki á staðnum að fylgjast með hvað er að gerast.. en life goes on.. og líka á Íslandi. Ekki að ég sé að kvarta neitt.. því það er frábært að vera hér... Var að bæta inn myndum á myspace-ið mittt Love you, miss you, kossar og knúsar, Idía
»
06.09.2007 13:06:03 / ingaloa86
Komnar inn á myspaceið mitt www.myspace.com/ingaloa86
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
�?�?�?�??�?¢â�??¬�?°g ver�?�?�?�??�?�??�?° 21 �?�?
Fyrir 1733 dögum
|